14júlí

Eigum við að reyna aftur, "taka tvö"

Já komiði sæl og blessuð.

Mikið hefur gerst síðustu daga, mánuði..... en það er in the past núna og við horfum bara fram á við þessa daga, svo ekkert rölf eða bitruleika með bloggleysið.

Mig langaði að tileinka þessu bloggi hvað ég gerði síðast liðnu helgi.

Hundafimin var búin að plana með margra daga fyrirvara hundagöngu, var ákveðið að labba leggjabrjót sem er um 4-5 klukkustundaganga á milli Þingvelli yfir í Hvalfjörð. Ábyggilega fallegasta leið með miklu útsýni.
Nema þennan örlagaríka laugardagsmorgun spáði Siggi stormur vondu og leiðinlegu veðri. Sem gerði það að verkum að þeir hörðustu komu í gönguna okkar.

Ég (Kata) og Móri
Silja og Dís / Fluga
Heiða og Bjartur
Berglind og Grímur
Guðrún og Beta
Kolla og Blanco

Góður hópur og vel samheldur.

Við hittums klukkan 09:00 fyrir framan reiðhöllina í Gusti, sameinuðumst með bíla og brunuðum upp eftir í hvalfjörð. Þar vorum við komnar um 10:30 og lagðar af stað í gönguna. (þið vitið hvernig hundafólk er, það TALAR mikið og er lengi að koma sér afstað, aðrir vildu meina að þetta voru bara konur og ættu erfitt með að komast að niðurstöðu).

Þegar við komum uppeftir, í botni Hvalfjarðar gerðu allir sig tilbúna til ferða, settu á sig húfu og vettlinga, ólar á hunda og auðvitað varð Móri að skíta risa dellu beint fyrir framan stóran hóp af fólki sem var að fara ganga Glym.
En íþróttadeildin fer eftir lögum og reglum, svo auðvitað þreif eigandi þessa óþekka hunds upp delluna.



Hér má sjá þennan fríða hóp í byrjun göngunar: Berglind, Heiða og Guðrún ásamt nokkrum ferfætlingum.

Við gegnum í dágóðan klukkutíma þegar veðrið hafði yfirhöndina og bolaði okkur aftur niður. Það var svo mikið rok og mikil rigning að ánægjan við það að ganga var farin. Svo ákveðið var að snúa við en samt sáttar við afrekið að komast þetta Glottandi

Í bakaleiðinni fengu sumir sér trítment, og fengu smá brake frá því að ganga. Ekki leið henni nú illa við þetta:



Þegar við vorum komnar niður aftur, ákváðum við samt að ganga í áttina að Glym þar sem rokið var ekki eins mikið niðrí botni.
Svo lagt var í hann í áttina að Glym, veit ekki hversu margir þekkja leiðina en áleiðis að glym ferðu í gegnum smá helli, þar stoppaði þessi fríði hópur sér til að grilla og fá sér að borða, bæði fyrir smá skjóli vegna vindsins og auðvitað rigningarinnar.



Allir orðnir vel blautir en rosa stemming í gangi og allir glaðir.



Svo var auðvitað grillaðar SS pulsur með öllu nema hráum. Þar sem Silja koma ekki með hráan lauk en allt annað hehe.
En Kolla og Silja stóðu vörð um grillið og pössuðu að allir voru með pylsu í hendi, en þær voru mjög vinælar ekki bara á meðal tvífættra heldur fjórfættra líka og urðu í bókstaflegri merkingu að standa vörð um grillið.





Jebb.... allir nutu puslu Ullandi



Þessa varð ég bara að hafa með, þarna er sem sé allt fólkið (nema undirrituð), en takið eftir aðstöðunni hjá "kokkunum" okkar. Hvað ætli sé að brenna á grillinu lol.

Þessi verð endaði svo um kl 14:00.

Ég veit fyrir mitt leyti þá var það fyrsta sem ég gerði var að fara í heitt bað og steinsofnaði þar reyndar í lokin (óvart).

En um kvöldið var svo hisst á veitingastaðnum Horninu. Þar var fengið sér að borða og talað um daginn og veginn.
Endaði svo kvöldið á því að fara í bíó á Hancock.

En þetta var samt frábær ferð í alla staði, nema við verðum bara að múta veðurguðunum eitthvað betur næst. En það stendur til að fara í fleiri skemmtilegar göngur með þessu hóp og vonandi fleiri.

Katan kveður.
14. júlí 2008 klukkan 20:54
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
3 athugasemdir
10mars

flotta og fræga gengið á sýningunni síðustu






Efri röð frá vinstri: Tanja, Erla, Kata og Silja
Neðri röð frá vinstri: Melane og Boss

Alltaf skemmtilegast á hundasýningum :D frábær mynd
10. mars 2008 klukkan 22:13
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
2 athugasemdir
05mars

Sýning og fleira

Jæja þá er sýningarhelgin yfirstaðin og gekk bara frábærlega vel á henni.

Ég sýndi hann Boss (chow chow) og fékk hann sitt síðasta CAC og CACIB, varð svo BOB og 4 sæti í grúbbu 5, flottur árangur hjá kauðanum :D
Mikið vildi ég óska þess samt að sýning hefði verið haldin eitthvað eftir 16. mars þá hefði ég náð að sýna Móra, mig dauðlangaði að mæta bara með hann heheh en við tökum þetta bara á næstu sýningu.

Þessar 3 mínútur sem ég var ekki að sýna á sýningunni var ég að vinna á henni og mest megnis var það inn í hringnum sem er miklu skemmtilegra. Gaman að fylgjast með því hvað dómarinn segir og hvernig hann dæmir þá.
Einnig skrárra en að þurfa "rífast" við sumt af þessu liði til að koma því inn í hringinn, skil ekki afhverju fólk getur ekki bara fylgst með og verið sjálft tilbúið, sum staðar úti tíðkast það ekki að vera með hringverði. Íslendingar eru svo spes fólk.

Talandi einmitt um að vera spes, eftir sýninguna á sunnudeginum stoppuðu ég, Heiða og Tanja á Shell bensínstöðinni í breiðholtinu til að taka bensin.  Þið vitið að þetta eru oftast tvær dælur í röð á svona stöðum, svo skeði þetta þannig. Þegar við komum að fyrstu dælunni rennur þar rauður yaris við líka til þess að dæla og í stað þess að keyra að næstu dælu sem var laus (fyrir framan hann) þá stoppaði hann á þeirri fyrstu, svo við urðum að bíða eftir að hann kláraði.
Kellingin fór út og dældi á meðan blótaði ég henni að hún skuli ekki fara á fremri dæluna, þegar hún klára gengur hún inn til þess að borga út úr bílnum stígur svo kall á 40 aldrinum með aflitað hár og sólgleraugu (alveg svakalega mikill töffari eitthvað) og ætla að fara inn líka......
Þá var mínum nóg boðið og ég opna hurðina og segi kurteisislega "fyrirgefðu getur ekki fært bílinn". Á móti fékk ég "er ekki í lagi með þig, er að fara borga" án þess að hugsa segi ég "ertu eitthvað þroskaheftur, þarftu að halda í hendina á henni á meðan hún borgar".
Það sem þið megið læra af þessu, FARIÐ Á DÆLU TVÖ EF HÚN ER LAUS ekki stoppa á þeirri fyrstu.
Svo ekki rífa kjaft við mig heheh.

05. mars 2008 klukkan 15:29
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
Engin athugasemd
21febrúar

Nissan Navara

Við Elli ákváðum núna fyrir nokkru að stökkva bara út í djúpulaugina og kaupa okkur bíl. Það kom ekki annað til greina hjá mér nema pallbíll.
Svo elli varð bara beygja sig frá Hondu CRV og skoða pallbíla með mínum, *Girl power* heheh

En þessi andskoti flotti bíll varð fyrir valinu og þetta er bara ultimate dogmobil Hlæjandi



Þið verðið bara að ýminda ykkur að hann sé FLAME red á litinn, þannig verður minn og með húsi að aftan auðvitað.

Ég get ekki beðið eftir að fara brumma á bílnum mínum um götur reykjavíkurborgar svo í sumar verður sko farið út á land í útilegur enda komin með kaggan til þess.

Annarrs allt gott að frétta af okkur hérna úr arnarásnum, Móri dafnar og dafnar. Ég kenndi honum að "tala" svo það er komið svona 89% veit samt ekki hversu sniðugt það var heheh en það kemur bara í ljós.

En þar til síðar ta ta

Kata
21. febrúar 2008 klukkan 19:29
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
5 athugasemdir
12febrúar

MYNDA BLOGGGGGGGG



Eigum við að ræða eitthvað saman ég get sett myndir inn á bloggið Hlæjandi en ég varð að download öðru forriti til þess *thanx* Anna.

En annars er það að frétta að maður er búin að liggja veikur heima tvo vinnu daga í röð, eigum við að ræða það eitthvað..... Ég er búin að missa mætingarbónusinn þessa vikuna og drep leiðast yfir daginn.
En þessi sæta mynd af Móra í fatboy-num er afraksturinn yfir þennan dag, er maður ekki bara sætur :D

Krakkarnir í unglingadeildinni héldu sýna fyrstu sýningu í garðheimum síðust helgi og vá hvað þau voru flott, voru pínu stressuð fyrir en þegar maður hleypur af stað gleymist stressið og í annarri umferðinni var þetta bara orðið gaman.

Ég fékk sent í pósti frá Heiðu (fæ oftast svona pósta frá henni) í dag sem mér fannst nokkuð skondinn.
Fyrst hélt ég að þetta væri úr húsi frá bandaríkjunum þar sem yfirstéttar fólk byggi með extra dálæti af Donald Trump en neibb maður þarf ekki að fara lengra en reykjanesbæ.





Þetta er með því funkýasta sem ég hef séð á ævi minni Svalur
Þetta er komið yfir í það að vera flott, þið skilji mig hehe.

En ætla svindla smá og fara út að labba með Móra og Ella þó maður á að vera inni við. Ég á svona feitbollu úlpu sem heldur vel á mér hitanum.

Later Kata
12. febrúar 2008 klukkan 18:13
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
1 athugasemd
05febrúar

Móri fór í bað..............

sem er ekki frásögu færandi nema hann lét eins og stunginn grís og ofaná allt þá fékk ég nett móðursíkiskast og varð að öskra á Ella að *bíp* hjálpa mér.

Þannig skeði þetta að mér datt í hug að skola móra þar sem hann fékk að koma með okkur upp á verkstæði á sunnudaginn að þrífa. Hann varð svo skítugur að ég henti honum í bað, sem er bara gott mál enda þarf vargurinn að læra baðast.
Hann "öskraði"  eins og áður sagði stunginn grís þegar vatnið flæddi yfir tásurnar og bakið, fannst þetta bara fyrir neðan sína virðingu og þyrfti ekki á svona pyntingum að halda.
Nema hvað gaurinn ákveður að hoppa upp úr helv. baðinu rennandi blautur og rennur á eitthvað til á framlöppunum. Þegar hann ætlar að stíga í lappirnar dettur hann niður aftur beint á kjaftinn.
Gat sem sagt ekki gengið á nema þremur. Ég hélt að hann væri brotin, og var við það að missa mig, eypaði á Ella greyjið inn í eldhúsi og hann kom eins og eldibrandur að hjálpa mér.
Spáiði í því hvað maður getur misst sig yfir litlum hlutum Skömmustulegur


Annars er það að frétta líka að krakkarnir í unglingadeildinni (þeir sem eru komnir lengra í "náminu") eru að fara halda sýningu í Garðheimum næstu helgi á smáhundadögunum. Þetta er þeirra fyrsta sýning og búið að æfa braut og alles fyrir hóið Hlæjandi
Kem með tíma og hvorn daginn það verður (líklegast samt laugardag) seinna á eftir að fá það á hreint frá Garðheimum.

05. febrúar 2008 klukkan 09:56
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
1 athugasemd
31janúar

Allt crazzzzzzzy

Jæja þá er allt komið á skrið.

Vá hvað það er langt síðan ég átti hvolp haha en þetta er ekkert smá gaman, strembið en gaman.
Litli kallinn (Móri) er algjör draumur í dós, hann pissar og kúkar eingöngu úti kann sestu og ligg er alveg að koma eins með standa skipunina ;).
Svo stefnum við á að taka vef æfingu næst fyrir fimina, verðum að stefna á að taka Flugu áður en skvísan fer á eftirlaun, ha Silja *blink* *blink* lol

Ég tók Móra út að labba áðan þá bara út götuna og svo næstu götu til baka, jújú honum finnst ógeðslega gaman að fara út og ekkert mál að labba í taumnum. En áðan þá vildi hann ekki labba í burtu frá húsinu, frekar fyndið að sjá þessa þvermóðsku í honum, þegar við vorum alveg að koma heim þá var hún (þrjóskan) ennþá til staðar. Hann vildi bara snúa við og labba heim, svona er þetta þegar maður er svona lítill og vitlaus og áttar sig ekki á því að heimilið er nokkrum metrum fyrir framan sig.

Núna er alveg að skella á ferðina okkar ella (ásamt fjölskyldunni minni) til Bandaríkjana.
En við erum að fara að ganga í crand canyon :D
Við byrjum á því að fljúga til minneapolis þar sem við ætlum að gista í tvær nætur og verlsa "smá" í mall of america ;) síðan er flogið til Las Vegas og gist í eina nótt. 
Eftir það byrjar ævintýrið, en lesið um það hérna: 
www.itferdir.is/subcategories.php?id=4isub=36

En notabene við leggjum tveimur dögum fyrr af stað ;)

Einnig er ég búin að festa miða á flugi til stokkholm ann 2-7 júlí og hótel. Við förum þrjár (ég,Heiða og Tanja) á heimsýninguna (hunda auðvitað). Hlakkar mikið til :D

Eins og þið sjáið er fullt að gera framundan, alla upp barn + Ella, vinna og fara til útlanda. Erfitt líf ;)
Kveð í bili.

Kata 
31. janúar 2008 klukkan 21:01
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
3 athugasemdir
22desember

22.12.2007

Skoðið myndaalbúmið mitt ég er ennþá í eitthverju smá veseni að koma myndunum hingað inn á bloggið mitt úr minni tölvu.

En þar er hvolpurinn sem mun koma til með að búa með okkur :D

22. desember 2007 klukkan 13:15
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
Engin athugasemd
15desember

15.12.2007

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli hún Kata 

Hún á afmæli í dag

Jæja þá er maður orðin 24.ára en samt ekki deginum eldri en 18 HAHAH

Dagurinn byrjaði alla vega mjög vel, ég og jólasveinarnir 13 þekkjumst mjög vel og þeir auðvitað gefa góðum krökkum í skóinn, sem sagt mér líka :D og byrjaði Elli að gefa með bak og tásu nudd í morgun. 
Svo fékk ég pakkann minn og fékk þessa geðveikt þægilegu tempur inniskó.
Í kvöld er svo stefnan tekin á Perluna á jólahlaðborð með familíunni.

ENNNNNN 

á morgun kl 15:00 fer ég að skoða hvolpa krílin :D kem með nýjar myndir af þeim þá orðin 4 vikna.

Kv. í bili Kata
15. desember 2007 klukkan 10:35
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
2 athugasemdir
10desember

10. 12. 2007

lol ég er svo léleg að halda leyndarmálum, held að ég sé búin að blaðra í svona flesta með það.

ENNNN smá hint fyrir ykkur hin :D



Kv. Kata sem getur ekki beðið eftir að jólin klárast hehe
10. desember 2007 klukkan 12:41
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
6 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Hallgerður Kata Óðinsdóttir
  • Staður: Garðabæ
  • Kyn: kvk
  • Hjúskaparstaða: Harð trúlofuð með honum Ella
  • Um mig: Er lítil snót sem bý í Garðabænum og með hundadellu á verulega háu stigi :D

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan